Ég hlaut Kal í Forníu.
Þá er jólafríið búið og þrælabúðirnar teknar við aftur. Jólafríið fór meðal annars í að taka á móti Grími svila mínum, kaupa munntóbak fyrir hann og hlusta á nýja áramótheitið hans. Nýja áramótaheitið hans er enn verra en það gamla, því á þessu ári ætlar hann ekki að gera neitt sem honum þykir leiðinlegt. Í samræmi við það var hann duglegur að taka af borðum, vaska upp og taka til hjá okkur fram að áramótum, en frá áramótum hefur hann ekki farið í sturtu, svarað í símann eða notað löng orð þegar hann talar.
Veðrið hjá okkur hefur verið með kaldara móti og menn hafa þurft að setja upp hanska þegar þeir hjóla í skólann eða fara í sólbað. Við ætlum hins vegar að halda á enn kaldari slóðir um helgina og ætlum að demba okkur til Lake Tahoe í tvo daga. Þar ku hitinn vera -12 um þessar mundir og hætta á kali ef ekki er varlega farið. Borghildur er svo hagsýn að hún tilkynnti mér strax að í tilefni ferðarinnar ætlaði hún að fata fjölskylduna algjörlega upp í North Face búð. Ég spurði hana hvort það væri virkilega praktískt að fata fjölskylduna upp fyrir 2 daga þegar allir ættu fínar úlpur heima á Íslandi. Þá horfði Borghildur góðlátlega á mig og lét eins og ég hefði bara pissað á mig. Strákar, þið þekkið þennan svip. Og hvar haldið þið að Borghildur sé einmitt núna? Jú, jú, í North Face. Ég reyni að stemma af heimilisbókhaldið á meðan.
Annars er það helst að frétta að Arnhildur hélt heim til Íslands fyrr í mánuðinum. Það var leiðinlegt að missa hana heim og söknuðirinn mikill á heimilinu. Við sjáum hana vonandi sem allra fyrst aftur.

VL.
Það voru fleiri en við sorgmæddir yfir heimflutningi Arnhildar. Veltan í Stanford Shopping Center hefur dregist töluvert saman síðan Arnhildur fór og afgreiðslustelpurnar í Abercrombie & Fisch voru hálf beygðar yfir því.
Yngri börnin reyndu að vinna úr sorginni við að missa Arnhildi með því að gerast klæðskiptingar. Draumur sérhvers föður.
Kallinn býr sig undir að taka á móti innbrotsþjófum. Takið eftir stæltum þjóhnöppunum. Þegar þið eruð búin að því skuluð þið horfa aðeins lengur á þá.
Arnhildur slær boltann upp í áhorfendastæði. Hún var seld til hafnaboltaliðsá Íslandi eftir þetta högg.
Mamma var með múður og heimtaði að vera með hatt allan sólarhringinn. Þá ákváðum við að þetta væri orðið ágætt og settum hana á sölu. Hún seldist hins vegar ekki - kannski út af hattinum, en kannski vegna þess að við vildum fá of mikið fyrir hana, sbr. skiltið í bakgrunni. Finnst ykkur $25 of mikið fyrir pundið? Okkur fannst það gjafverð.
Gunni mágur yfirgaf loksins Seattle eftir að borgaryfirvöld þar á bæ buðust til að borga fyrir hann miðann heim til Íslands. Grímur (til vinstri) skutlaði Gunna út á flugvöll og kyssti hann bless.

8 Comments:
Tessi sida hja ykkur er bara snilld. Tu kemur mer alltaf til ad grata ur hlatri, tarf alltaf tissuekassann vid hondina. Gaman ad fylgjast med ykkur elskurnar minar.Soknum ykkar mikid, torrablotid verdur ekki tad sama an ykkur!! Floridakvedjur Maria Fjola og co.
Sömuleiðis, elsku María Fjóla. Ég á eftir að sakna kokteilsins hjá ykkur, veitinganna og síðast en ekki síst á ég eftir að sakna þess þegar Birnir stjórnar dansinum við borðhaldið!
Ef þið hafið 5 mínútur kíkið þá á þessar klippur úr Dagsljósi 1993. Þetta er spúkí, sérstaklega neðri klippan um karókígæjana. Skemmtilegt moment þegar annar þeirra segist ekki hafa séð konuna sína í rúman mánuð. Algjör snilld.
http://www.sbs.is/comments.asp?id=233
Viddi.
Mig langar til að nota tækifærið til að þakka öllum fyrir kommentin á síðuna.
Þá hafa þættinum borist allnokkur bréf þar sem kvartað er undan því að ég tali um veðrið í Kaliforníu. Ég vildi hins vegar bara láta ykkur vita af því að hér er metkuldi, leiðslur að springa vegna frosts og ég þurfti að skafa af bílnum í gærmorgun, believe it or not - og hana nú.
Bless.
Viddi.
Missti bara nokkra dropa í nýju Victoriu Secret nærbuxurnar mínar.
Passa mig að setja fullorðinsbleyju á mig fyrir næsta lestur á síðunni.
Kveðja,
Lú-ið
Eiginmaður minn fór umsvifalaust í það að panta far þegar hann frétti að Borghildur væri á leið í North Face átlett. Veit samt ekki hvað það er frá þeim sem hann á ekki en hann er vanur að finna eitthvað út úr því.
Meira blogg!
Vegna væringa um að bloggi yrði sjálfhætt þar sem enginn nennti að lesa það og setja inn athugasemdir - er ég komin í varnarbaráttu og segi ÁFRAM STANFJORD BLOG. Við diggir lesendur bíðum spennt eftir meira. Í fréttum á Íslandi er aðallega rætt um barnaperra á Vernd og BDSM (eða hvað það nú heitir) perra á Byrginu. Hvert stefnir þetta land?
Við hvern ertu aðallega að spjalla um barnaperra á Vernd og BDSM-perra á Byrginu? Mér sýnist landið stefna í rétta átt.
Bestu kveðjur.
Viðar.
Probablemente, me equivoco.
http://www.b4tporn.com/
keri
Post a Comment
<< Home